Sjoefn7:
Ég sé nú ekki alveg hvað þú átt við, áttu þá við að það sé
sanngjarnt að ég hafi bara fengið 4 miða í stúku af því að
eitthvað fólk sem kom á eftir mér í Smáralindina fékk ekki
neinn stúkumiða.
Ég held nú að það sé frekar skrýtinn hugsunarháttur…
Ég var að kaupa miða fyrir mig + maka (vorum bæði á staðnum),
tvo félaga mína + maka, systur annars þeirra + maka (voru á
staðnum!)
Mér finnst skrýtnara að fólk sem kom á eftir mér fékk miða
sem við sem komum á undan á staðinn áttum að fá…
Ég er alveg á því að mér líkar ekki við það að fólk sé að
hamstra miða, til þess eins að selja þá og græða á því, en
það var ekki á neinn hátt raunin í þessu tilviki, þannig að
ég vona að þú sjáir hvað mér finnst kjánalegt að þér finnist
“fínt” að ég hafi “bara” fengið 4 miða, þegar ég átti fullan
rétt á þessum 5 sem ég missti af.
Það skal tekið fram að þetta átti sér stað við mjög saklaus
mistök hjá starfsmönnum Skífunnar, þessar skriftir eiga á
engan hátt að vera neitt skítkast á Skífuna eða starfsmenn
hennar… :) Að ég tali nú ekki um að það er auðvitað búið
að bæta úr þessum misskilningi á viðunandi hátt fyrir alla
aðila… :)
Kveðja,
immerse