Því miður hefur fyrirhuguðum tónleikum með Fræbbblunum, Búdrýgindi og Dr. Gunna verið aflýst.
Ég veit ekki enn hvers vegna (bókunarmistök af einhverju tagi skilst mér), en vonandi verður af þessum tónleikum þótt síðar verði.
Þann 27.mars er í hyggju að halda minningartónleika um Joe Strummer á Grand Rokk. Hugmyndin er að þar spili Fræbbblarnir, Bubbi, Heiða og Miðnes og hugsanlega fleiri rokkgoð.
Ég biðst afsökunar á þessum mistökum.