Rokktónleikar í anda 80´s 13. febrúar 2003 með hljómsveitinni Fíkn.
Tónleikarnir verða í Hinu Húsinu og byrja kl. 20:00 en hljómsveitirnar Brutal,Diagon og Lada Sport hita upp liðið en
upphitun stendur yfir frá klukkan 20:00 - 21:30 en síðan stígur
unglingarokksveitin Fíkn á stokk og endar tónleikana með glæsilegu
nýju og bættu lagaprógrammi auk rosalegra óvæntra atriða í anda
80´s rokksins!
Hljómsveitin Fíkn spilar tónlist sem getur kallast
blanda af Deftones og Kiss rokki með miklum melódískum áhrifum,
Fíkn spilar frumsamda tónlist eftir rokkarann Agga sem er söngvari, aðalgítarleikari og lagahöfundur Fíkn. Hann er einnig yngstur í bandinu!

Á tónleikana er 16 ára aldurstakmark og Frítt inn!!!

Allir eru hvattir að mæta í góðum rokk fýling og auðvitað
í rokk stílnum sjálfum, rifnum gallabuxum og þannig. Þið vitið hvað ég meina!!!

Takk fyrir mig. :)
Rock never dies!!!