Ég sagði aldrei að Elvis væri betri tónlistarmaður, hvað þá lagahöfundur, ég sagði að ég virti hann meira sem tónlistarmann. Elvis var tónLISTarmaður, hvort sem þér líkar það eða ekki, þar sem hann var söngvari. Hann var ekki listamaður í orðsins fyllstu merkingu (nema þá í því að syngja) þar sem hann skapaði ekki neitt (svo ég viti til) en hann var skemmtikraftur og einn af þeim bestu í sínu fagi.
Elvis var skemmtikraftur
Kurt var listamaður
Hvor um sig var góður í sínu. Ég virði Elvis meira. Þú getur ekkert sagt við því. Þetta er mitt álit. Hafðu þitt álit, það kemur mér ekki við (ég, og aðrir hugamenn, vorum spurðir hverja við virtum meira, þannig að ég opinberaði mitt álit) en þú mátt láta það í ljós að vild.
Það sama gildir um alla aðra tónlistarmenn á þessum lista. Ég get ekki sagt að þeir séu betri og hef ekki sagt það. Ég sagði að ég virði þá meira, og meina það burtfráséð tónlistarstefnu. Ég fíla ekki grunge en hins vegar fíla ég margar post-grunge hljómsveitir og því fær Kurt virðingu. Hins vegar þá finnst mér margir aðrir hafa haft meiri áhrif til langframa, á sjálfan mig og heiminn.
Ég lít á Kurt og Nirvana (þrátt fyrir gæði tónlistarinnar) sem extreame dæmi um instant-gratification og áhrifin sem eymir af enn í heiminum hjá aðdáendum finnst mér vera eins og fíklar að reyna að upplifa fyrstu vímuna aftur. Hún kemur samt aldrei aftur þar sem allt sem líkist Kurt of mikið finnst aðdáendendum vera rip-off (þú kannast við þá hugmyndir) og allt annað gefur ekki sömu áhrif. Afleiðingin er vítahringur. Það sama gildir um t.d. Bítlana. Þeir gerðu það nákvæmlega sama á sínum tíma (þeirra tónlist höfðar þó meira til mín).
Þetta er hins vegar mitt sjónarhorn. Ég er nokkuð viss um að þú deilir því ekki og er það bara gott og blessað. Þetta er einungis ástæðan fyrir því að ég hampa Kurt ekki á herðum mér. Tónlistin er góð en ég er ekki viss um að það hafi verið tónlistin sem gerði þá þetta stóra, þó svo að hún skemmdi ekki fyrir, heldur aðallega ímyndin.
En á öðrum nótum: Ég heyrði um daginn að Raggi Zol væri eitthvað að tromma hjá ykkur. Er eitthvað til í þessu?<br><br>
http://www.jupiterfrost.net/pan