oXin ég hef heyrt fullt af þessu iðnaðar rusli frá linkin park! Ég gaf þessu alveg séns en þetta er bara svo fake að ég fæ æluna upp í háls!! Þetta er bara n´sync popprokksins! Og svo segirðu að ég sé að segja þetta til að vera svalur, eins og allir hinir!? Eina sem ég var að gera er að segja mína skoðun á þessari “hljómsveit” og tók það skýrt fram að þetta er einungis mitt álit! Síðast þegar ég vissi þá var hugi.is síða til að koma sínum skoðunum á framfæri!
Svo skaltu ekki vera að segja mér hvaða hljómsveitir ég hlusta á! Fyrir mér eru Linkin park og J-lo alveg sama helvítis iðnaðar ruslið! Eini munurinn er sá að J-lo er allavega flott! Það verður seint sagt um Linkin Park!
Já, svo ert þú það kræfur, að halda því fram að Linkin park, sé ekki sellout mainstream hóruband!!
Ég hafði ALDREI nokkurn tíma heyrt minnst á þetta band, áður en þeir komu með þessi rosalegu milljón dollara myndbönd og fataauglýsingar!! Sættu þig við það félagi, að Linkin park er hápunktur lágkúrunnar hvað varðar tónlist! Þetta er bara eitt af fjölmörgum sveitum sem hafa verið settar saman af einhverjum risum í tónlistarbransanum. Svo er flest ef ekki allt samið ofan í þá og þeim sagt í hverju þeir eiga að vera, hvernig hárið á þeim á að vera ofl. ofl. ofl.
Svo eitt varðandi minn tónlistarsmekk. Þá bara svo þú losnir við Ben affleck,sem er by the way ekki tónlistarmaður frekar en kærastan hans,
úr hausnum á þér. Ég hlusta aðallega á Soundgarden, Audioslave, Queens of the stone age, Silverchair, Nirvana, Alice in Chains, Bítlana, Led Zeppelin og doors, svo eitthvað sé nefnt!
ÞEtta eru dæmi um ALCÖRU bönd, sem hafa metnað fyrir að semja, og semja frá hjartanu. Það er nákvæmlega ENGIN einlægni í neinu sem Linkin park hafa nokkurn tíma gert, félagi og reyndu nú að svara almennilega. Ekki eitthvað “rassgat” hér og þar. Ef þú getur það ekki, þá mæli ég eindregið með að þú lokir á þér þverrifunni og hugleiðir þangað til þú getur komið með eitthvað innihaldsríkara en eintóm rassgöt og fuck eitthvað!!!
Stefán Vilberg