En fyrir hvern er fréttin skrifuð? Hún er ekki skrifuð fyrir þá sem fylgjast ekki með Survivor vegna þess að þeim er hundsama hver vann, vita ekki einu sinni hvað þetta gengur út á. Hún er ekki heldur skrifuð fyrir þá sem fylgjast með Survivor vegna þess að þetta eyðileggur fyrir þeim spennuna þegar nokkrir þættir eru eftir. Hvern er fréttin þá skrifuð fyrir? Ef Survivor væri ekki sýndur og vinsæll á Íslandi þá væri þetta ekki frétt.