Þeir nota náttúrulega ekki allt myndefni sem er tekið upp. Þannig geta þeir ráðið því að miklu leyti hvernig keppendur koma fyrir. Ef einhver fær t.d. orð á sig fyrir að vera algjör frekja þá gera þeir kannski í því að sýna bara efni þar sem hún er að frekjast eitthvað en ekki þegar hún er næs til að styðja það. Þá hata allir hana og fylgjast með þættinum til að hlakka yfir því ef henni er hent út. Líka ef einhver á að vera latur. Þá sýna þeir kannski ekki efni þar sem hann er að gera eitthvað, bara þar sem hann situr á rassinum.