Það sem mér fannst asnalegast við þennan þátt er að það var ekki talað við einn aðalleikmanninn, þ.e. Rob C. Að mínu mati er hann the real survivor maðurinn. Það var ekki einu sinni talað við hann!! Og svo finnst mér ekki réttlátt að Amber hafi unnið þar sem hún bara fylgdi með Boston Rob, eins og sagt var, hann tók bara öll skotin! hann var sá klókari að mínu mati í leiknum sjálfum.
Svo er það eitt enn sem mér finnst asnalegt. Allir þeir sem skráðu sig aftur til leiks vita að þessi leikur snýst um að koma sér áfram og reyna að vinna milljónina, þ.á.m með því að svíkja. Hvernig í ósköpunum getur fólki tekið þetta svona rosalega persónulega eins og Big Tom og Lex? Það skil ég ekki.
Já og svo ein spurning að lokum, hvað var Big Tom að segja að Rob hafði sagt um son sinn og fjölskyldu, því að ég man held ég ekki eftir neinu atviki þar sem það bar á góma.