First vill ég segja að ég var sáttur við sigurvegarann. Þó SAndra hafa smogið nokkuð auðveldlega í gegnum þetta, aldrei verið kosið gegn henni og hún aldrei skotmark er útaf fyrir sig taktík sem virkar og virkaði fyrir hana. Mér finnst hinsvegar að lil hafi engan veginn átt skilið að vera þarna, væluskjóðann sem elti bara Burton þanngað til hann gerði þau mistök að “segja henni upp” og þá gerði hún eitt plot með hinum stelpunum sem SAndra var reyndar lengi búinn að vera að plana lengi.
Það var lýsandi dæmi um hversu lítið vit lil hafði á leiknum þegar hún valdi Söndru með sér í úrslit, talandi um að skjóta sig í fótinn. Auðvitað átti hún miklu meiri sjéns í Jon og ég hefði frekar viljað sjá þau tvö fara í úrslit og ég er sannfærður um það að þó Jon sé mesti snákur og fúlmenni sem survivor hefur séð(lætur Rob úr seríu 6 líta út einsog afi gamli jólasveinn) þá hefði hann tekið kosninguna á móti lil 4 atkvæði móti 3. Einfaldlega fyrir þær sakir að hann spilaði leikinn mest af öllum þarna og hann var hreinskilin um hvernig hann spilar(spilar til að vinna hvað sem það kostar) og hann sagði það best sjálfur þegar hann sagði; ‘Eg kom ekki í þennan leik til að eignast vini ég kom til að vinna. Og lil stakkk líka fólk ill í bakið(Rupert – Burton – stelpan frá Texas) og þær stungur sviðu ver en stungur Jons því það vissu allir að Jon væri svikari og hann var að minnsta kosti hreinskilin um það sjálfur en lil litla gaf sig út fyrir að vera skáta engillinn sem var góður við alla(reyndar gat hún ekkert af því gert hún er bara svona) En það er verra að vera stungin af góðum vin en óþokka sem þú veist er snákur. OG þó við elskum öll að hata jon eða hötum að elska hann þá var hann með gott plan og það virkaði, hann komst jafn lang og Rob úr seríu 6 en það er einsog óþokkarnir stoppi þar í þriðja sæti. Það er einsog fyrri glæpur ná í hælana á þeim þar og negli þá niður. En mér finnst samt að það var bara útaf heimsku lil(blessuð sé hún gamla góða konan sem ég hef ekkert á móti persónulega og myndi elska ef ég þekkti hana) sem hann komst ekki í úrslit.
Það sem mér hefði fundist sanngjörn úrslit hefðu verið Jon á móti Söndru þar sem sandra hefði unnið eða Jon á móti lil sem hefðu verið eðlilegustu úrslitin miðað við að lil vann þessa hálfvitalegu seinnustu þraut(bara af því hún stundar eróbik) þar sem Jon hefði rétt svo unnið.
EN með úrslitin komin á svart og hvítt er ég samt sáttur við sigurvegarann hún átti þetta alveg skilið Sandra(naglinn frá Purta Rico)