Eftir að hafa verið að spá svolítið í spilin undanfarið þá held ég að sökum þess hve Amber og Jerri voru nánar í gegnum þann tíma sem þær voru saman þá mun hún vera næst til að fara á eftir Nick. En Nick hreyfir víst ekki handtak. Jafnvel held ég að fólk sé ekki lengur að kjósa meðfram röðum Ogakor (krókudíll) og Kucha (kengúra). Þannig að eins og ég sé þetta fyrir mér núna þá held ég að Jerri fari burt næst þar sem það er nauðsynlegur þáttur til að brjóta upp í hópnum og sameina þá sem Barramundi. Á eftir Jerri verður það líklegast spurning um Nick og Amber en þar sem Nick hefur verið að spara sig undanfarið fyrir reward og immunitiy challenges þá tel ég að hann verði næstur vinni hann ekki þær þrautir. Amber mun vera sú þriðja að mínu mati til að fara þar sem hún var of náin Jerri og einmanakenndin eftir að Jerri fer mun fæla hana frá samskiptum við hópinn. Einnig sést það greinilega að Colby, Keith og Tina eru ennþá góð saman og eru í bandalagi. Í sjálfum sér held ég það sé of fljótt að spá frekar í spilin hver verði fyrstur að fara af “final five” en ef ég á að koma með einhverjar ágiskanir þá tel ég að Rodger og Keith séu líklegastir. Mér sýnist þó sem Colby hafi fengið 5 atkvæði áður, Elizabeth 2 og Tina 3 að þau séu líklegust til að verða síðust eftir að Rodger og Keith detta út. Fyrir þá sem ekki muna þá hefur Keith verið svolítið ósparsamur og sífellt pirrað fólk þegar það hefur komið að eldun matar. Það mun verða honum að falli og láta Colby slíta úr bandalagi við hann.

Mínar hugleiðingar um framhaldið:

Jerri -> Nick -> Amber -> Keith

Spái síðan aftur í spilin þegar nær dregur.
“Forget the Tribe, My Pants Have Spoken!”