&%$#"!
Hlustar enginn á punk lengur ?
Aldrei neinn inná þessu .. :(
taflan.org
Á menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst verða haldnir tónleikar í bílskúrnum heima hjá mér (rauða húsið efst í Ingólfsstræti). Það er bílskúrinn sem hávaðinn sem þú heyrir þegar þú ferð í Bónus Hallveigarstíg kemur frá. Þar æfa þrjár hljómsveitir eins og er (Logn, B3 og ein í viðbót, sem hefur ekki hlotið nafn).
Stóra hurðin við götuna verður opnuð og jafnvel, ef veður verður ágætt, þá spilum við kannski á gangstéttinni fyrir framan.
Þetta er í fimmta eða sjötta og jafnframt síðasta skipti sem þetta verður gert, því eftir áramót verður bílskúrinn rifinn.
Við byrjum líklega um kl. 16 og hljómsveitir sem koma fram eru:
DYS
Gavin Portland
Muck
Logn
Manslaughter
Bjarnason 3
Eðli Annarra
+eitt
Við verðum búnir nógu snemma til að hægt sé að ná bæði þessu og Entombed á Sódómu um kvöldið.