Ég var frikkin hrædd við að horfa á þetta myndband.
Þetta er uppáhaldslagið mitt með patd. Og ég hafði svo háar eftirvæntingar, síðan sá ég trailerinn. Ég fékk svo mikið sjokk. Ég held að ég hafi meira að segja grátið o.O
Ég tók þátt í umræðu um þetta myndband á letsdisco og það voru allir með svo mixed skoðanir á þessu, annað hvort var þetta hræðilegt eða allt í lagi. Ég sætti mig við hvorugt frá þeim. Ég bjóst við svo miklu frá þeim því ég veit að þeir gætu gert frábært myndband. En í staðinn komu þeir með þetta, myndband sem er annað hvort kallað hræðilegt eða allt í lagi.
ég er alveg sátt við það núna og finnst það bara allt í lagi, en ég hefði svo miklu frekar fá myndband sem ég hefði elskað svo mikið. En þeir gerðu þetta svona og tóku þessa áhættu. Þeir minnkuðu smá í áliti hjá mér eftir þetta myndband, þeir voru greinilega ekki að hugsa um að flestir aðdáendur þeirra eru ungir og þetta er ekki myndband fyrir unga krakka. alls ekki. sumir voru meira að segja að pæla í því hvort þeir hefðu gert þetta svona til að höfða meira til eldri kynslóðarinnar og það fær mig bara að líða illa. Það myndi líta út eins og þeir vildu ekki hafa aðdáendur sem væru ungar stelpur. það er einmitt sem ég þoli ekki, hljómsveitir sem virðir ekki aðdáendur sína. Ég virði t.d. Gerard Way fáránlega mikið því hann sagði þetta sem er í undirskriftinni minni. MCR hækkaði ekkert smá í áliti hjá mér. En stundum með patd þá er eins og þeir virði aðdáendur sína ekki það mikið. En þeir eru náttulega enþá svo ungir og eiga eftir að læra svo mikið.
Þetta myndband fékk mig bara til að hugsa svo mikið. vá. sorry fyrir þetta komment o.O ég þurfti bara að koma þessu út.
"Reading is one form of escape. Running for your life is another."