“Ekkert að fela”
hann gárar vatn kemur skriðum af stað
rómur kenndur við almanna
leysir úr læðingi gömul leyndarmál
árangur erfiðis, ófriðarbál
fela
ég hef ekkert að fela
kem bara til dyra
klæddur eins og ég er
fela
ég hef ekkert að fela
kem bara til dyra
klæddur eins og ég er
hún svíður inn að beini, salt í svöðusár
lyganna saga sem kallar fram tár
brýtur mann niður, gefur engin grið
ég hef fengið nóg og bið bara um frið
fela
ég hef ekkert að fela
kem bara til dyra
klæddur eins og ég er
fela
ég hef ekkert að fela
kem bara til dyra
klæddur eins og ég er