Jamm þetta er DVD diskur sem er ekki seldur á Íslandi.. guð stundum mætti halda að við ættum heima í Afríku eða eitthvað.. það er selt svo lítið af þessu dóti sem stærri löndin eru að fá…
Allavega ég pantaði hann frá USA.. og verð að segja að þetta sé bara snilld… Maður sér allt ferlið fyrir því að halda tónleika, hótelin sem hún gistir á, myndatökur.. þegar hún er að vakna á morgnana og fær sér morgunmat, þegar hún fer inn á baðið og setur á sig make-up… þetta er semsagt um 3 daga í Mexíkó þegar hún var að halda tónleika þar…
Var mjög hissa t.d. hvað það er mikil vinna og mikið af fólki að vinna við eina tónleika.. og örryggisgæslan var brjáluð það mætti halda að hún væri forsetinn.. farið með leitarhunda og látt þá þefar af hverju einasta herbergi áður en hún kemur þangað… Þora ekki að láta hana t.d. gista á hótelherbergi fyrr en það er búið að koma með leitarmenn og hunda að þefa út um allt… Og hvert einasta skipti sem hún steig út úr bíl og labbaði inn í hús, sem tekur svona 5 sekúndur.. Þá heyrir maður aðdáendur öskra úr fjarlægð…
Maður sá líka nokkur moment þegar hún var alveg að brotna niður.. fór að gráta og svoleiðið.. miklu erfiðari vinna en maður hefði trúað…
Þó ég var stór aðdáandi áður þá breytti þessi diskur algjörlega áliti mínu á henni.. Minnir mig á þegar Madonna gerði svipað.. lét myndatökumenn elta sig við daglegt líf sitt<br><br>___________________________________
Kíkið á bloggið mitt…
http://myrkrabarn.blogspot.com/ :)