Ringo Starr og Paul McCartney stigu saman á svið í Royal Albert Hall í Lundúnum í gærkvöldi til að minnast Georges Harrisons, félaga síns úr Bítlunum en ár var liðið í gær frá dauða Harrisons. Eric Clapton, Joe Cocker og Dhani Harrison, sonur Georges, voru meðal þeirra sem einnig komu fram fyrir um 5 þúsund áhorfendur.