Næstkomandi fimmtudagskvöld, 28.nóv mun hljómsveitin Írafár fagna nýútkominni og jafnframt fyrstu geislaplötu sveitarinnar með glæsilegum útgáfutónleikum.
Tónleikarnir verða haldnir í Borgarleikhúsinu og hefjast kl.20.30.
Ekkert aldurstakmark er á tónleikana og það kostar aðeins 1.500 kr inn.