Box eða hnefaleikar er íþrótt sem er ólögleg hérlendis, þ.e.a.s það er bannað að keppa í henni en mér vitanlega er ekki bannað að kenna hana eða þjálfa. Eftir að hafa gengið með löngun til að stunda þessa “villimannslegu” íþrótt lengi vel, tók ég mig til og hafði samband við Hnefaleikafélag Íslands, sem staðsett er í Hafnarfirðinum. Þegar ég hringdi í félagið, talaði ég við vingjarnlegan mann sem hvatti mig eindregið til að koma og prófa og fékk ég meðal annars að vita að konur borguðu...