Eftir langa fundi með lögfræðingum mínum og persónulegum ráðgjöfum hef ég ákveðið að best sé að segja frá atvikinu sem Viðar Hannah nefndi í skilaboðaskjóðunni hér á undan. Ástæða þess að ég sneiddi fram hjá frásögn þessari var sú að ég taldi hana vera blett á nánast fleklausri riddaraferilsskrá minni. Mér fannst atvikið ekki vera í samræmi við mitt heldrimanns atferli og því beit ég í tunguna og vonaðist til að málið væri grafið og gleymt. En þar sem málið hefur verið dregið emjandi fram í...