Orðrómur á bílskúrasvæðum formúlubrauta hermir að McLaren hafi boðið David Coulthard tveggja milljóna punda bónusgreiðslu, jafnvirði 230 milljóna króna, vinni hann Michael Schumacher í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Laun Coulthards munu hafa verið hækkuð um meira en 50% í samningi sem hann undirritaði í Magny Cours á dögunum. „Peningar hafa ákveðið mikilvægi en það eru þó ekki þeir sem drífa mig áfram,“ segir Skotinn. „Ég er nú þegar orðinn milljónamæringur en það sem ég vil umfram...