Já, þetta er fyrsti spuninn minn! Og ég vona bara að ykkur eigi eftir að líka hann vel :D „Vaknaðu nú Isabella mín, við þurfum að fara að gera okkur tilbúin“, sagði Claudia við dóttur sína. „Æjji mamma, bara klukkutíma í viðbót, gerðu það“, svaraði Isabella, úrill að vana. „Klukkutíma, ja þú biður nú ekki um lítið!“, svaraði Claudia. „Eftir klukkutíma þurfum við að vera lögð af stað á Kings Cross brautarstöðina, og ég get ekki betur séð en þú eigir eftir að pakka niður mest öllu dótinu þínu....