Ég ætla að byrja á því að taka það fram að ég er komin á þrítugsaldurinn og því engin gelgja í dramakasti, svona til að kæfa skítköst af því tagi í fæðingu. Ég hef verið í þónokkrum samböndum á minni ævi en augljóslega, eins og titillinn gefur til kynna, hefur ekkert þeirra enst. Ekki bara það heldur hef ég komist að þeirri niðurstöðu að mig skorti gjörsamlega hæfileikann til þess að greina sauðina frá úlfunum þegar kemur að strákamálum. Ég er farin að halda að ég verði einfaldlega ekki...