Ég samdi nokkur ljóð handa stúlku sem skipar sérstakan sess hjá mér og vildi deila þeim með ykkur. ———————– * Óendurgoldin ást * Ég berst við brennandi ástarloga, sem aldrei láta undan, frá mér alla orku soga, ef ég læt ei undan. ———————– * Örlög * Örlagatrúar er ég nú, ástina hefi fundið, hundrað prósent hefur þú, hjarta mitt þér bundið. ———————– * Vetrarylur * Dimmir vetrardagar nú, drottna meira og minna, þá er til mín mætir þú, mun ég ylinn finna. ———————–