Ég er búinn að fá nóg af skattastefnu Reykjavíkurborgar. Ég borgaði 100 þús í fasteignagjöld á síðasta ári, það verður hærra þetta árið. Útsvar var hæsta mögulega í fyrra, í ár “nýttu” þeir sér ekki aukið svigrúm til útsvarsaukningar, en eru samt í hópi þeirra sem heimta hæsta útsvarið. Embættismenn borgarstjóra sitja sveittir við að finna ný og ný gjöld, svo sem holræsagjöld, sorphirðugjöld, hvernig má hækka hitaveitu o.s.frv. Nú ætla ég að snúa vörn í sókn, og færa lögheimili mitt til eins...