Jæja … nú eru líklegast allir Vina aðdáendur á landinu að farast úr spenningi eftir að hafa séð þáttinn á laugardaginn. Þetta var bara fyrri hlutinn af lokaþættinum þannig að hver veit hvað gerist næst ? Það er varla hægt að bíða eftir næsta þætti, Chandler stakk af, Monica er ófrísk og Joey getur ekki verið viðstaddur giftinguna, sem er mikið vandamál vegna þess að hann á að vera presturinn ! Ég var bara að velta því fyrir mér hvað gerist, snýr Chandler aftur til sinnar heittelskuðu og...