Fullkomni kærastinn Hún hljóp eftir ganginum, hún var ekki viss um hversu lengi hún hafði hlaupið, hún var orðin sveitt og var byrjuð að mása. Hún tók snögga beygju, hún stansaði. Hvað hafði hún verið að hugsa, þegar hún hitti hann virtist ekkert vera að honum. Hann hafði verið sætur og venjulegur. Hún heyrði eitthvað, fótatak. Hún leit í kringum sig, hún sá stafla af kössum. Hún faldi sig bakvið þá. Hún skalf og svitnaði af hræðslu. Hún heyrði hann nálgast. Hún sá skugga hans nálgast, hún...