Ég finn stingandi sársaukann, skerast í holdið, skerast í hugann, ég hugsa ekki neitt, finn bara til , sársaukann mikla , sem ég fékk í gær, það er hættulegt, að vera lengi úti, vera með viðkvæma húð, vera með viðkvæmt hjarta, sársauka í augum, út af sólinni , sem eitt sinn skein. En nú birtir til, sólin skín aftur, en nú veit ég betur, veit ég meira, meira en í gær, meira en í fyrra, lífið er eilífur lærdómur.