Ég ætla að biðja þá sem ekki hafa lesið bókina að lesa ekki lengra nema þeir vilji láta skemma fyrir sér aðalplottið í bókinni! Fyrir þá sem hafa lesið bókina, þá hef ég eina spurningu: Finnst engum öðrum endirinn alveg ótrúlega asnalegur? Ég fékk þessa bók í skóinn og sökk alveg í hana, var bara að klára hana rétt áðan. Málið er að mér fannst hún ótrúlega vel skrifuð, mjög áhrifarík og spennandi. Það eru ótrúlega miklar lýsingar á öllu í bókinni, sem er bara fínt, ekkert yfirþyrmandi. Svo...