Já, það sem ég var að velta fyrir mér hérnamegin, sem ég basla við að koma bendlinum í áttina að “Áfram” hnappinum, var hvort ekki væri hægt að fá einhversstaðar nýjan fartölvusníp? Afsakið orðalagið, finnst þetta bara mest lýsandi nafn á þessum hlut. Fyrir þá sem ekki vita er þetta s.s. tækni sem IBM (held ég) innleiddi allra fyrst. Þetta er lítill plasthlutur, staðsettur í lyklaborðinu og virkar eins og joystick fyrir músarbendilinn.. Minn semsagt er lúinn og barinn. Orðinn næstum sléttur...