Hvít jól (Stefán Jónsson/Irving Berlin) Ég man þau jólin, mild og góð er mjallhvít jörð í ljóma stóð. Stöfum stjörnum bláum, frá himni háum í fjarska kirkjuklukknahljóm. Ég man þau jól, hinn milda frið á mínum jólakortum bið að æfinlega eignist þið heiða daga, helgan jólafrið. Það á að gefa börnum brauð Það á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum, kertaljós og klæðin rauð, svo komist þau úr bólunum,. Væna flís af feitum sauð, sem fjalla gekk á hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð, gafst...