Eitt sinn var ég á leiðinni í félagsmiðstöðina mína(Ekkó) í gamla góða Þinghólsskóla(jeje…hann heitir Kársnesskóli, þetta er bara flottara) og ég var á hjóli. Til að gera þetta skemmtilegra þá vil ég láta ykkur vita að vinur minn, sem heitir Rivian á huga, er þekktur fyrir alls kyns lúaleg brögð til að meiða vini sína, þar á meðal mig. Alla vegana, á sama tíma og ég var að hjóla niður grasbrekku, sem var blaut, hringir síminn. Ég á fleygiferð niður bremsa þá til að svara símanum en þá fer...