Heil og sæl öllsömul. Ég fór nýlega norður á land að heimsækja fjölskyldu mína, þó einkum Tinnu Svört Sítudóttur, gömlu kisuna mína. Ég segi gömlu því hún er nú orðin 18 ára og mamma er orðin svartsýn að framtíðarhorfur hennar. Ég hélt alltaf að gamlir kettir ættu að fitna þegar þeir eldast en hún horast bara niður, þrátt fyrir allar tilraunir foreldra minna í að hressa hana við. Hún fær nautahakk, fisk, rækjur og rjóma og það er yfirleytt alltaf þríréttað hjá henni. Hún borðar alltaf...