Þetta byrjaði allt saman þegar ég fékk mína fyrstu kisu, sem ég fékk haustið 2000! Þann gullmola fengum við frá systur mömmu. Yndislegri kött hafði ég aldrei eignast… Hún var rosalega falleg, nett og fíngerð. Kelirófa, grallari og bara allt sem góðir kettir eru! Því miður lenti hún fyrir bíl sumarið 2002, aðeins 2 ára gömul! Ég sakna hennar og á alltaf eftir að gera það! Núna er svo komið að því að fjölskyldan stækkar á ný! Nú urðu kettlingar frá systur pabba fyrir valinu! Fyrst átti...