Einstakt tækifæri fyrir alla áhugamenn um hunda og hundamenningu Hundaskólinn Gagn og Gaman stendur fyrir tveimur einstökum fyrirlestrum í lok mars. Fjallað verður um ,,tungumál” hunda í máli og myndum. Þátttakendur fá m.a. að sjá og heyra hvernig hundar nota ,,tungumál” sitt til forðast og koma í veg fyrir átök og árekstra. Einnig verður fjallað um lyktaraðgreiningu, hvernig hundar vinna með nefinu og fjallað um jarðsprengjuleit með hundum í Angóla. Fyrirlesarar eru Turid Rugaas og Anne-Lil...