Wacken Open Air er ein elsta og þekktasta þungarokkshátíð Þýskalands, sem dregur að sér á hverju ári mörg þúsund manns frá öllum heimshornum. Hátíðin, sem haldin er í smábænum Wacken í Norður-Þýskalandi, er þriggja daga löng hátíð og fer fram dagana 3. - 6. ágúst 2010. Spilað er á sex sviðum, þar af 4 aðalsvið og tvö minni. Wacken er stórglæsileg hátíð, þar sem aðbúnaður, aðstaða, öryggi og almenn framkvæmd og utanumhald er til fyrirmyndar. Það kom því ekki á óvart að hátíðin hlaut Live...