Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði standa fyrir tónleikum á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar miðvikudagskvöldið 19. maí. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:00 um kvöldið og koma þar fram hljómsveitirnar Jakobínarína, Thunder Cats, BOB, Runólfur, Panódíl og Mósaík. Aðgangur er ókeypis.