Kona nokkur var að versla í Bónus verslun í hverfinu. Hún var búin að setja 3 lítra af léttmjólk í körfuna ásamt einum eggjabakka með 6 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1/2 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni. Talsvert drukkinn maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði sá drukkni hæglátlega: “Þú ert öörrugglega einhleyp”! Konunni gramdist þessi ummæli drukkna...