Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður, og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. Við gætum sungið, gengið um, gleymt okkur hjá blómunum, er rökkvar, ráðið stjörnumál, gengið saman hönd í hönd, hæglát farið niðrað strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. Horfið er nú sumarið og sólin í sálu...