KA-liðið smellti sér í efsta sæti Norðurriðils Íslandsmóts karla í handbolta á laugardaginn og tóku það sæti af Fram sem þeir sigruðu örugglega 25-29. Fyrri hálfleikur var í járnum, Fram byrjaði þó betur og hafði 8-6 yfir um miðjan hálfleikinn. Smám saman komust KA-menn betur í takt við leikinn, komust yfir 9-10 og Bjartur Máni Sigurðsson sá til þess með síðasta marki fyrri hálfleiks að KA hafði 13-14 yfir í hálfleik. Einar Logi Friðjónsson hóf síðari hálfleikinn með marki fyrir KA 13-15, en...