Bikarúrslitahelgin hófst með leik Hauka og Njarðvíkur í 9. flokki kvenna. Það var búist við nokkuð ójöfnum leik, þar sem lið Hauka hefur gengið töluvert betur í vetur en liði Njarðvíkur. Því má þó ekki gleyma að í bikarúrslitum getur allt gerst. Það var þó ekki að þessu sinni, því Haukastúlkur unnu nokkuð sannfærandi. Þær leiddu í hálfleik 29-14 og byggðu hægt og rólega ofan á það forskot í seinni hálfleiknum og unnu að lokum 53-27. Best í liði Hauka var Helena Sverrisdóttir (25 stig, 21...