Sagan á bakvið þessa grein hefst eftir tónleika Coldplay hér á síðasta ári. Eftir tónleikana fórum við bakvið höllina og bíðum í góðan tíma, og að lokum náðum við tali af Coldplay, þó samt aðallega Chris söngvara. Eftir að hafa spjallað í dágóða stund spurði hann hvort við ættum demó sem við viðurkenndum að við ættum. Við létum hann fá geisladiskinn og upplýsingar um hvernig hann ætti að ná í okkur. Vikurnar liðu og ekkert heyrðist frá Chris, og við héldum þá bara að hann hefði annað hvort...