Ég hætti með mínum fyrrverandi fyrir 5-6 mánuðum. Við vorum ekki búin að vera mjög lengi saman, nokkra mánuði en það var samt mitt lengsta samband og í fyrsta skiptið var ég virkilega ástfangin og elskaði þennan dreng útaf lífinu. Við hættum saman útaf ástæðum sem eru svo löng saga að ég nenni ekki að skrifa það hérna, enda skiptir það ekki máli… hann var fljótari en ég að komast yfir þetta og var kominn með nýja gellu mánuði seinna og það er eitt af því sem særir mig mest :( ég elska hann...