ég er fangi, á hverjum degi vakna ég í fangelsi. margir koma og fara. en ég er fangi hér að eilífu, ég hef aldrei gert neitt af mér. ég er fangi þar sem ekki er farið illa með mig, ég þarf að taka töflurnar mínar og hugsa hvernig ég endaði hér. ég er liggjandi alla daga. ég er með krabbamein, og það er ólæknanlegt. ég ligg hér á spítalanum og bíð dauðadags míns. hér læknast fólk hversdagslega. en ég…. ég mun ekki læknast. ég heiti rúnar stefánsson, 25 ára, ég á kött sem ég kalla hnoðra, ég...