Jæja jæja, þá er komið að því að við drengirnir í Studio23/LoKey records gefum út okkar annað mixtape. Teipið kemur á föstudaginn og verða sölustaðir nánar auglýstir síðar. En að efni þráðarins. Það verður útgáfuparty á föstudagskvöldið á Barnum, laugavegi 22. Teitið byrjar um 22:00 og stendur eitthvað fram eftir. Það verða skemmtiatriði í gangi og munu nokkrir vel valdir rapparar stíga á sviðið. Teipið inniheldur ca. 20 lög, með artistunum úr 23 studios, t.d. S.Cro, Original Melody,...