Mig langar að segja ykkur frá því að um þar seinustu helgi fór ég í æfingabúðir með úrvalshópi í frjálsum. Ég var yngsti strákurinn þarna, en búðirnar eru fyrir 15-20 ára en ég er bara 14, en ég komst inn af því að ég náði einhverju lágmörkum. Það sem gert þarna var mjög skemmtilegt. Við byrjuðum á föstudeginum á smá fundi með Vésteini landsliðsþjálfara, síðan fórum við út og tókum mjög góða en stutta æfingu (bara kortér). Eftir það fórum við inn og fengum okkur að borða og svo kom Þorgrímur...