B lið Íslands skipað Birni Þór Hilmarsyni, Sigmundi E. Másyni, Gunnar Þór Jóhannsyni og Stefáni Orra Ólafssyni er í öðru sæti eftir 2 daga af þremur. Gengi liðsins í Finnlandi hefur verið mjög góður og eru þeir aðeins tveimur höggum frá því fyrsta, sem er Svíþjóð. Björn Þór hefur spilað best af Íslendingunum og er alls +1 í heildina eftir 36 holur, hann var -1 seinni hringinn, sem er mjög gott, +1 er besta skorið í mótinu. Á eftir Birni kemur Gunnar Þór sem er +8 sem er líka mjög góður...