Sælir veiðimenn og -konur til sjávar og sveita Ég er einn af fjölmörgum skotveiðimönnum sem hef verið að feta mín fyrstu skref í skotveiðiíþróttinni undanfarin haust ásamt nokkrum góðum félögum. Því miður höfum við félagarnir ekki haft tök á því að fylgja veðruðum skyttum í margar veiðiferðir til þess að læra réttu handtökin enda skila veiðiferðirnir okkur síður en svo alltaf miklum afla. Hvað um það, við teljum þetta skemmtun sem fátt annað jafnast á við. Það sem okkur hefir einmitt þótt...