Nú þegar aðeins sex dagar eru til kosninga og óðfluga styttist í það að endanleg niðurstaða komist í það hverjir muni stjórna landinu okkar næstu 4 árin er gaman að fylgjast með umræðu manna og kvenna um pólitík og þær skoðanir sem íbúar þessa lands bera í brjósti sér. Mig langaði til að segja ykkur stutta sögu af sjálfum mér. Í gær lýsti ég nefnilega vanþóknun minni í útvarpinu, á fólki sem getur ekki sleppt því að fara út að skemmta sér innan um annað fólk án þess að vera með barmmerki í...