Ég var að koma úr vinnunni í morgun eftir næturvakt og var að keyra Miklubrautina, þegar ég sé eitthvað liggja á götunni. Þetta var svartur hundur (líklega blanda af íslensku) sem hafði verið keyrt á. Líklega innan við mínútu áður, ég stoppaði að sjálfsögðu og hljóp út að hundinum, sem var með stórt sár á höfðinu, hann gat greinilega ekki hreyft aftari hluta líkamans, enda alblóðugur þar. Hann ýlfraði alveg svakalega af sársauka. Stuttu seinna kom eigandi hans hlaupandi, sagði “Æi klaufinn...