Ég las frétt um daginn þar sem konu hafði verið meinað að nota gjafakort í bíó. Gjafakortið gildir bara á almennar myndir, þe myndir sem kostar eitthvað, 1100 kall á. Konunni og manninum hennar langaði þó að sjá Sanctum, sem er sýnd í 3D og kostar eitthvað meira að sjá hana. Konan mátti því ekki nota gjafakortið, mátti ekki einu sinni borga mismuninn! Þau fóru því heim, súr á svip. Hræðilegur atburður. SEM BETUR FER var stofnuð facebook grúppa um þessi voðalegu athæfi bíósins og fólk hvatt...