Hæ. Mamma mín og pabbi eru skilin. Og stundum gisti ég hjá pabba, ég er 15 ára og mér semur vel við pabba minn, hann á yndislega konu sem mér semur líka vel við. Hún á son sem er æði. En fyrir umþaðbil einu og hálfu ári þá fluttu þau í annað hús. Gott mál, flott hús og góð staðsetning. En þetta hús er frekar gamalt og stórt, frá svona 1960. Allt það sem er þar inni er pínu gamaldags, en það er bara flott. En ég held að það sé einhver sem bjó þar áður og er dáinn, búi þar ennþá, bara dáinn....